Buy your weekday smoothies and get your weekend ones for free. (7 for the price of 5!)
Ljóð og Lag
Ljóð og Lag er íslenskt menningarverkefni sem sameinar list, sögur, leiki, ljóð og tónlist. Í heimi þar sem gervigreind og hraði ráða ríkjum, skapa Ljóð og Lag rými fyrir ró, sköpun og tengsl.
Markmið
Að efla vitund um íslenska menningu og menningararfleifð
Skapa samverustundir og tengsl á milli kynslóða
Styðja við sköpun og ímyndunarafl barna
Styrkja málþroska og auka tónlistaráhuga barna
Framtíðarsýn
Okkar von er að Ljóð og Lag verði traustir félagar barna í sköpun, lærdómi og í lífinu sjálfu og standa vörð um það sem við megum ekki missa: tunguna, menninguna og mannleg tengsl.
Framtíð Ljóðs og Lags er bundin þeirri trú að list, orð og leikur séu ekki bara leiðir til lærdóms, heldur lyklar að því sem gerir okkur mannleg.