Buy your weekday smoothies and get your weekend ones for free. (7 for the price of 5!)
Skilmálar
Almennt:
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.ljodoglag.is. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu Ljóð og Lag teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru. „Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir.
Ljóð og Lag áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og áskilur sér einnig að breyta verðum eða taka vörur úr sölu fyrirvaralaust. Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Ljóð og Lags Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði Ljóð og Lags. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum Ljóð og Lags.
Upplýsingar og verð:
Verð á vefsvæði Ljóð og Lags eða öðru markaðsefni eru birt með virðisaukaskatt. Verð er birt með fyrirvara um innsláttar-, prent- og myndvillur. Verð getur breyst án fyrirvara. Greiðslur fara fram í öruggum greiðslugáttum Teya.
Afhending vöru:
Kaupandi getur valið um að sækja vörur í afgreiðslu fyrirtækisins á opnunartíma skv. vefsíðu eða að fá þær sendar með Póstinum eða Dropp. Sendingartími er áætlaður við kaup og sendingargjald reiknast við kaup. Sendingargjald getur tekið breytingum án fyrirvara. Ljóð og Lag áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Ljóð og Lag mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:
Ljóð og Lag skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til Ljóð og Lags innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Ljóð og Lag áskilur sér rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Ljóð og Lag endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu - þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkorti eða innlögn á bankareikning.
Galli:
Ef vara er gölluð er Ljóð og Lag skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Ljóð og Lag mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst til Ljóð og Lags sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Ljóð og Lag sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Ljóð og Lag áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.
Trúnaður:
Kaupanda er heitið fullum trúnaði er varðar allar upplýsingar sem hann gefur upp við kaup á vöru á síðunni. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Annað:
Ljóð og Lag áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Ljóð og Lags telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Ágreining vegna túlkunar eða framkvæmda skilmála skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Gildistími:
Skilmála þessir gilda frá 23. nóvember 2025.
Persónuverndarstefna
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.